Harito stendur uppúr

Entries categorized as ‘Uncategorized’

Do you really want to kill Arnar Bentsson?

November 5, 2008 · 1 Comment

Mér er spurn, eða eru Kári og Andri einfaldlega of stórir bitar fyrir Adda Æsta-Fannar..held að það hafi skapast einhver múgæsingur um það að drepa Arnar. Mér dettur líka í hug að Kári sé eigingjarn lover..Arnar myndi eflaust vera auðmjúkur og þakklátur ástarpungur. Jæja nóg um þennan sora…

Hvað segja menn, á að koma með fleiri svona RDG spurningar? ? ?

Obama tók McCain, það var glæsilegt og vel að verki staðið..ætli Einar Odds sé ekki með slímugan kolkrabbaarminn inní sér heimtandi endurtalningu og eflaust hellings hundur í honum. eða hvað??

Categories: Uncategorized

Kreppudag-ur-ar-arnir

October 8, 2008 · 2 Comments

Ógulegir tímar eru þetta, blaðamannafundir á hverjum degi, Ísland í heimspressunni, fall íslenzku krónunar, Sölvi Ottesen fyrirliði félagsliðs í Danmörku, Íslenskir fréttamenn missa sig fyrir framan erlenda fréttamenn..

Fólk hefur sést gráta undir stýri á leið heim úr vinnu…og það er afarleiðinlegt að heyra en fólk verður að “calm the fuck down…”

Við Ragnar urðum vitni af kreppugeðveiki á mánudaginn…við vinirnir fórum í sund eftir vinnu og gengum inní sundlaugina í Laugardal. Við fórum inná fyrsta sturtugang þar sem 6 sturtur eru..við fórum í næst fremstu sturturnar og þaðan sáum við 2 menn við næst innstu sturtuna. Svo heyrum við samtal þeirra á milli. Köllum manninn í sturtunni Arnar og manninn sem stendur fyrir framan hann Frank.

Arnar: “Ert þú að bíða eftir mér?”

Frank: “Nei, ég er bara að bíða eftir að þú farir!”

Við Raggi erum á þessum tímapunkti að springa úr hlátri..

F: “Þetta er bara mín sturta og ég ætla bara að nota hana”

A: “Ehhh já ok…” “ég er þá bara hættur”

Hann gengur svo í burtu en Frank kemur sér undir bununa. Þar byrjar hann að klæða sturtuna í lítið þvottaskinn. Við Raggi göngum bara til sunds og erum í pottunum og gufunni í góðar 90 mín…þegar við k

omum aftur í sturtuna þá er Frank vinur okkar þar enn og það kom okkur nánast ekki á óvart..Þar stóð hann utan sturtunar og skallaði vatnið…svo sparkaði hann í vatnið aftur á bak..

Kleppur er víða…

Categories: Uncategorized

Bakverkir og almenn lömun

October 3, 2008 · Leave a Comment

Aaaa það er bara rétt rúmt eitt og hálft ár síðan ég skrifaði stakt orð hér.  Það var afar hressandri svo nú þegar ég virðist ekkert hafa að gera þá fannst mér tilvalið að hefðja óreglulegar skriftir að nýju.

Ég slasaðist ansi illa fyrir 11 dögum síðan þegar ég reyndi að taka hjólhestaspyrnu í innanhúsknattspyrnuleik. Lenti illa og missti andann og saug allt það loft sem ég náði ofan í lungun..var einsog ryksuga á yfirsnúning. Hélt að ég yrði góður eftir 1-2 daga en annað hefur komið á daginn og ég fór til Gunzo í sjúkraþjálfun í gær og hann beygði mig, hrykkti í baki og nuddaði mig í kleinu. En ég er enn frekar slappur og sé bara ekki að ég sé að lagast neitt á næstunni…..

Enough of that fucking crying…

Víkingarnir mínir eru í svo rosalega miklum skít að sjaldan hefur hefur annað eins sést…Losuðu sig við Jesperinn en réðu snarbrjálaðan Everton mann í staðinn..kannski er það skref í rétta átt en hver veit í alvörunni…sjáum til með það..vona að hann lagi liðið og komi því aftur í efstu deild. Það gerist ef “gamlar” hetjur hefti á sig skóna og teipi saman liðbönd og annað..djöfull væri gaman að komast í form og æfa einsog tittlingur í rassgati í blárri bíómynd.

Svo varð ég TIGER WOODS RYDER CUP meistari á laugardaginn var…ég var í sterku liði Bandaríkjanna sem saman stóð af mér, Andra, Pétri Svans og Agla Atla. Gjörsigruðum við lið Evrópu 5-1 og fórum að því loknu út á svalir á nærfötunum einum klæða og úðuðum kampavíni á heita kroppana. Snilldin ein og vonandi verður framhald á þessari veislu.

Categories: Uncategorized

Öskudagúr

February 21, 2007 · 2 Comments

Nú er sá gleðidagur runninn upp sem kallast öskudagur..man þegar maður var lítill í supermanbúning og árið eftir þegar maður var í ruslapoka sökum peningaleysis eftir súpermanbúningskaupin.. Hvað maður hélt að allir væru að skemmta sér vel..En núna sé ég að þetta er kvöl og pína…Krakkarnir frekari en allt..heimta kassann sem nammið er í en ekki eitt stykki…fylla síðan lófanna af brjóstsykri í stað 2 mola sem ég gaf leyfi fyrir…hvað getur maður gert?? Ekki neitt..Núna vantar eitt stykki Kára sem hikar ekki við að tækla börnin smá í jörðina..

Vandræðalegt móment…þegar ég sit í stólnum mínum og krakkarnir standa fyrir framan mig og biðja um að fá að syngja..”Mhmm já endilega, syngiði” segi ég einsog Lord Pedó, launa þeim svo sönginn með Elitesse XXL súkkulaðistykki…eflaust vonbrigði eða hvað ég veit það ekki..

Af hverju er fullorðið fólk ekki í búningum..það myndi virkilega setja skemmtilegan svip á mannlífið þennan eina dag á árinu..Ég færi í vinnuna sem Guðmundur í Byrginu..ef það teldist of gróft, þá væri Borat jafnvel fyrir valinu…Jegsimess..Chengui..

takk fyrir mig og góðar stundir

Categories: Uncategorized

Ekki hættur!!

February 20, 2007 · 1 Comment

HEF aðeins gleymt mér í gleðinni…

Kem með eitthvað skemmtilegt á næstunni…

Stay tuned

Categories: Uncategorized

Sanding Kleiningberger

February 8, 2007 · 4 Comments

Já haldiði að Sanding Kleiningberger sé ekki að mæta til þess að diskaknapast..Hann ku vera heitasti knapinn og er hvað heitastur um þessar mundir fyrir lagið “This is Miami” sem er um það bil lélegasta textasmíð sem ég hef heyrt…Tónsmíð Jón Gnarrs “Úlpan mín” er á allt öðru leveli..En Dynjandi bassinn er það sem dáleiðir fjöldann.. Vonandi mun liðið sem hópast á þetta skemmta sér, vímuefnalaust og með gleði í hjarta…

Góð Klingingberger stemma

Categories: Uncategorized

Andri bílakall

February 6, 2007 · 2 Comments

Andri og bilaði bíllinn

Bifvélavirki í Kópavogi fékk verkbeiðni sem á stóð; Það heyrist alltaf “klúnk” þegar bíllinn beygir. Bifvélavirkinn fór út með bílinn í reynsluakstur. Hann tók hægri beygju, og mikið rétt, það heyrðist “klúnk.” Þá tók hann vinstri beygju og það heyrðist aftur “klúnk.”

Bifvélavirkinn fór þá aftur á verkstæðið, kíkti í skottið og fann fljótlega vandamálið. Hann skilaði verkbeiðninni aftur, með eftirfarandi athugasemd: “Fjarlægði keilukúlu úr skottinu.”

Þetta er helber lygi og þvæla en sagan er sönn..

Categories: Uncategorized

Djammon

February 5, 2007 · 5 Comments

Eftir enn eina djammhelgina fór ég að hugsa um það hvenær maður verður of gamall fyrir bæinn…Er hægt að verða of gamall fyrir bæinn?

Jája það getur vel verið að það sé rosalega flott að koma inná skemmtistað og fara beint inní flippdans við Like a Virgin með Madonnu, en hvenær verður maður of gamall fyrir það? Það væri rosalega flott að sjá Konung flippdansins Andra T-Gun koma 36 ára gamlan inná gólf skemmtistaðar þar sem engin er að dansa og fara í dansham.. En fyrir þá sem þekkja ekki manninn þá getur þetta verið ansi hreint hallærislegt..

 

Við fórum inná hinn alræmda stað Hverfisbarinn á laugardaginn, aka Hlandskálin, sökum hlandlyktar sem umlykur staðinn. En þar vorum við meðal elstu manna á dansgólfinu..og ég gat ekki annað en hugsað “hvenær verða þessi glæsilegu dansþreifingar mína úreltar? Eru þær kannski úreltar?” Líklega aldrei en maður veit ekki..Stúlkurnar þar svo áberandi undir lögaldri að manni grunar hreinlega að Kompás sé með Rassíu í gangi..

 

Framhald á þessari hálfhugsun seinna…verð víst að vinna líka…

 

Later

Categories: Uncategorized

What a dream

February 3, 2007 · 2 Comments

Rosalegar eru draumfarir Salmon, Dreymdi að Arnar Bentsson væri kaldrifjaður leigumorðingi sem læt ekki segja sér neitt tvisvar..
Ragnar Ingi var orðin cultmaster sem var flensunni að bráð og það kom 6 síðna viðauki með Séð og heyrt um hvernig hann varð úti í yfirgefnum bragga..Flensan tók hann, Ég réð mig á Togara og fór á sjó en kom fljótlega til baka..
Kári tók peningana okkar og lagði undir í Rúllettu og vann…seinn var hann stunginn í kviðinn fyrir að sparka í hund..Kári hafði það nú samt af…
Andri var orðin einhver glaumgosi sem var aftan á Séð og Heyrt prancing around with weener hanging out..
hraunid

Categories: Uncategorized

Nú syndir Laxinn upp á við..

February 1, 2007 · Leave a Comment

Það er víst orðið svo að maður reynir að hrista sig uppí í bloggun. 3 skipti sem ég skipti um vetfang.. hugsa að hér muni mér líða vel…Tosic stendur sig vel hér og að sjálfssögðu Daníeló Hjalta sem er sensation hér á wordpress.. Reyni kannski að flippa eitthvað og segja frá staðreyndum…Þá getiði sagt” thats funny, because it´s true”

So whats good for the goose is good for the Gander..

Gleði gleði..

Categories: Uncategorized