Harito stendur uppúr

Iceland Airwaves 2008

October 22, 2008 · 2 Comments

Heilir og sælir fjendur mínir og félagar..

Ég vildi bara negla inn léttri skýrslu um Airwaves sem ég og Andri ásamt Nínu sóttum stíft frá miðvikudegi til laugardags.

Armbandið sem var fagurbleikt kostaði 8900 og sat það í mörgum góðum mönnum. Enda sátu þeir menn bara heima hjá sér og horfðu á sjónvarpið sitt. Ég fór á 17 tónlistaviðburði sem gerir 524 kr á hvern viðburð. Egill Atla var með okkur á Diktu, Boys in a band, css og Yelle. Hann skemmti sér svo vel að ég held að hann mæti á næsta ári

  1. Our lives á Nasa, ekki alveg nógu gott en þeir fá nú samt 2/5 fyrir showið. Þá er hálf stjarna sem bassaleikarinn fær fyrir að reyna að tala við fólkið í salnum. Vandræðalegt!
  2. Múgsefjun á Organ, vel stappað enda staðurinn aðeins stærri en handakrikinn á Aron Pálma. Þeir voru skemmtilegir en við stoppuðum stutt. 2,5/5
  3. Mammút á Hressó, skelfilegur tónleikastaður og maður var nánast troðinn niður. En krakkanir í Mammút voru hressir, þau fá 3/5 en Hressó fær 0
  4. Jeff Who? á Hressó, Félagi vor Bjarni Lárus Hall steig á stokk með félögum sínum, spiluðu nýtt efni og smá gamalt með. Ég var að fíla þetta stöff og þó að bassatromman hafi dottið út og 20 mínútna töf orðið þá var mjög gaman. Ungar stelpur með myndavélar voru fjölmargar. Hressó og töf dró þá niður en ég hlakka til að fá nýju plötuna. 4/5
  5. El Perro Del Mar (SE) á Nasa, Fokkleiðinlegt svíavæl, par í fangabolum. Fangelsa þetta pakk. Annars voru voðamargir ánægðir með þetta. 1/5
  6. Florence & The Machine(UK) í LSR, Kynþokkafullt og kraftmikið, 3.5/5
  7. Fuck Buttons (UK) í LSR, Hér vitna ég bara í ódauðleg orð Helga Björnssonar í hlutverki Mola ” Djöfulsins hávaði er þetta maður, ég heyri ekki rassgat” 1.5/5
  8. XXX Rottweiler á Tunglinu, Komum seint inn og áttum ekki von á að þetta væri að rífa þakið af húsinu. En það var mikil stemmning og ekki skemmdi fyrir myndband af Gordon Brown á meðan að þeir tóku lagið Þér er ekki boðið.. 4/5
  9. Ghost (FO) á Tunglinu, þarna voru komnir færeyskur samkynhneigður blökkudrengur og voru væntingarnar þónokkrar en Ghost var svo slöpp að ég sá mann deyja úr hljóðmengun. 1/5
  10. FM Belfast á Tunglinu, eftir hreint út sagt skelfilegan Draug þá var allur vindur úr manni. Andri vildi fá mig á dansgólfið en ég var dræmur…Það segir bara enginn Andra að hann ætli ekki að djamma…þannig að hann dró mig á gólfið. Maður sá alls ekki eftir því, troðfullt á gólfinu og allt varð vitlaust. Ein besta tónleika upplifun sem ég hef lent í. 5.5/5
  11. Hjaltalín Í LSR, Pretty basic hjá þeim en allt varð vitlaust þegar Paul Oscar mætti óvænt á sviðið. 4/5
  12. Munich (DK) í LSR, Magnþrungin stemmning þar sem söngkonan var einkar glæsileg og var það ansi fínt show. 3.5/5
  13. Motion Boys á Nasa, eftir rólegt kvöld á Listasafninu fórum við á Nasa, þar sem Motion Boys bauð uppá partí, ótrúlega gaman, við vorum með fremstu mönnum og dönsuðum allsvakalega með. Björguðum meðal annars ungri stúlku sem datt í gólfið, bombuðum liði sem sá hana ekki í burtu og hentum henni á lappirnar..við vorum svo snöggir til að ég efast um að hún muni eftir þessu. 5/5
  14. Dikta í LSR, Ein besta tónleikahljómsveit heims að mati Dr Æsta. Þeir voru vel þéttir og mjög skemmtilegir tónleikar 4.5/5
  15. Boys in a band (FO) í LSR, Hressir og kátir færeyskir piltar sem rokkuðu hann góðan, við stigum í það minnsta trylltan flipp dans og þar sem ég mælti með BIAB þá var ég ánægður með frammistöðuna. 4/5
  16. CSS (BR) í LSR, Brasilian electro rokk sem heillaði okkur ekkert uppúr skónum. Enda negldum við yfir á Tunglið. 2.567/5
  17. Yelle (FR) á Tunglinu, Snarbilað electroswing þar sem dansgólfið var kjaftfullt og maður flaut um gólfið líkt og korktappi í faxaflóa. 5/5

Sem sagt gaman gaman, Maður sér sko ekki eftir þessum 8900 krónum..bilað stuð og félagsskapurinn var fyrsta flokks..

Við sem fórum í þennan slag tökum hann aftur á næsta ári..söfnum liði því þá er gleðin bara meiri

Categories: LAX

2 responses so far ↓

  • Jigz // October 22, 2008 at 11:40 pm

    OMG…handarkrikinn á Aron Pálma =LOL

    Líst vel á Airwaves….er byrjaður að spara fyrir næsta ár!

  • skizo // October 24, 2008 at 3:03 pm

    djöfull er ég ánægður með þessa lýsingu, ætlaði sjálfur að fara taka þetta eitthvað saman en þetta verður ekki toppað!

    good times, good times maður!

Leave a Comment