Aaaa það er bara rétt rúmt eitt og hálft ár síðan ég skrifaði stakt orð hér. Það var afar hressandri svo nú þegar ég virðist ekkert hafa að gera þá fannst mér tilvalið að hefðja óreglulegar skriftir að nýju.
Ég slasaðist ansi illa fyrir 11 dögum síðan þegar ég reyndi að taka hjólhestaspyrnu í innanhúsknattspyrnuleik. Lenti illa og missti andann og saug allt það loft sem ég náði ofan í lungun..var einsog ryksuga á yfirsnúning. Hélt að ég yrði góður eftir 1-2 daga en annað hefur komið á daginn og ég fór til Gunzo í sjúkraþjálfun í gær og hann beygði mig, hrykkti í baki og nuddaði mig í kleinu. En ég er enn frekar slappur og sé bara ekki að ég sé að lagast neitt á næstunni…..
Enough of that fucking crying…
Víkingarnir mínir eru í svo rosalega miklum skít að sjaldan hefur hefur annað eins sést…Losuðu sig við Jesperinn en réðu snarbrjálaðan Everton mann í staðinn..kannski er það skref í rétta átt en hver veit í alvörunni…sjáum til með það..vona að hann lagi liðið og komi því aftur í efstu deild. Það gerist ef “gamlar” hetjur hefti á sig skóna og teipi saman liðbönd og annað..djöfull væri gaman að komast í form og æfa einsog tittlingur í rassgati í blárri bíómynd.
Svo varð ég TIGER WOODS RYDER CUP meistari á laugardaginn var…ég var í sterku liði Bandaríkjanna sem saman stóð af mér, Andra, Pétri Svans og Agla Atla. Gjörsigruðum við lið Evrópu 5-1 og fórum að því loknu út á svalir á nærfötunum einum klæða og úðuðum kampavíni á heita kroppana. Snilldin ein og vonandi verður framhald á þessari veislu.
0 responses so far ↓
There are no comments yet...Kick things off by filling out the form below.