Harito stendur uppúr

Öskudagúr

February 21, 2007 · 2 Comments

Nú er sá gleðidagur runninn upp sem kallast öskudagur..man þegar maður var lítill í supermanbúning og árið eftir þegar maður var í ruslapoka sökum peningaleysis eftir súpermanbúningskaupin.. Hvað maður hélt að allir væru að skemmta sér vel..En núna sé ég að þetta er kvöl og pína…Krakkarnir frekari en allt..heimta kassann sem nammið er í en ekki eitt stykki…fylla síðan lófanna af brjóstsykri í stað 2 mola sem ég gaf leyfi fyrir…hvað getur maður gert?? Ekki neitt..Núna vantar eitt stykki Kára sem hikar ekki við að tækla börnin smá í jörðina..

Vandræðalegt móment…þegar ég sit í stólnum mínum og krakkarnir standa fyrir framan mig og biðja um að fá að syngja..”Mhmm já endilega, syngiði” segi ég einsog Lord Pedó, launa þeim svo sönginn með Elitesse XXL súkkulaðistykki…eflaust vonbrigði eða hvað ég veit það ekki..

Af hverju er fullorðið fólk ekki í búningum..það myndi virkilega setja skemmtilegan svip á mannlífið þennan eina dag á árinu..Ég færi í vinnuna sem Guðmundur í Byrginu..ef það teldist of gróft, þá væri Borat jafnvel fyrir valinu…Jegsimess..Chengui..

takk fyrir mig og góðar stundir

Categories: Uncategorized

2 responses so far ↓

Leave a Comment